Hvammstangadeild RKÍ veitir Ágústi, Friðbirni og Kjartani viðurkenningar

Á föstudag veitti Hvammstangadeild Rauða kross Íslands viðurkenningar vegna Skyndihálparmanns ársins en bræðurnir Ágúst og Friðbjörn Þorbjörnssynir voru tilnefndir fyrir björgunarafrek í febrúar í fyrra. Í kjölfarið ákvað valnefndin að veita Ágústi sérstaka viðurkenningu fyrir eftirtektaverða færni og þekkingu í skyndihjálp.

Einnig ákvað Hvammstangadeild RKÍ að veita þeim Friðbirni og Kjartani Sveinssyni viðurkenningu fyrir björgunarafrek sem þeir unnu. Viðurkenningarnar voru veittar á bíla- og búvélasölunni hjá Jóa sem var vel við hæfi þar sem þeir björguðu einmitt lífi hans.

Tilgangurinn með tilnefningu til Skyndihjálparmanns ársins er að vekja athygli almennings á mikilvægi skyndihjálpar og hvetja sem flesta til að vera undir það búnir að veita hjálp á vettvangi slysa og veikinda. Sérstök valnefnd fer yfir þær ábendingar sem berast og útnefnir einn Skyndihjálparmann ársins. Í nefndinni eru fulltrúar frá Rauða krossi Íslands, Slysavarnafélaginu Landsbjörg, Neyðarlínunni, Landspítala háskólasjúkrahúsi, Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

/Norðanátt.is

Fleiri fréttir