Hvert er þitt uppáhalds lag?

Söngvarakeppni Húnaþings vestra fer fram í Félagsheimilinu á Hvammstanga laugardagskvöldið 9. apríl næstkomandi. Er þetta í níunda sinn sem keppnin er haldin er þema keppninnar í ár er „uppáhalds lagið mitt“.

Opið er fyrir skráningar á keppnina og geta áhugasamir og jafnvel verðandi stórsöngvarar sent skráningar á netfangið saeunnv@gmail.com . Með skráningu þarf að tilgreina bæði nafn flytjanda og eða flytjenda auk þess hvaða lag skal syngja.

Fleiri fréttir