Hvítabjörninn verður áfram á Króknum
feykir.is
Skagafjörður
25.08.2015
kl. 09.18
Byggðasafn Skagfirðinga heldur úti líflegri fésbókarsíðu sem fróðlegt er að fylgjast með. Í nýlegri frétt kemur fram að Samningur safnsins við Náttúrufræðistofnun um lán á hvítabirninum í Minjahúsinu á Sauðaárkróki hefur verið framlengdur til ársloka 2017.Um er að ræða hvítabjörninn sem felldur var á Þveráfjalli 3. júní 2008. „Við minnum á að Minjahúsið er opið frá 12 til 19 alla daga til og með 31. ágúst. Og það kostar ekkert að kíkja á bjössa,“ segir í tilynningu á fésbókarsíðu Byggðasafnsins.