Í kafi
Í síðasta sundtíma vetrarins hjá 1. og 2. bekk Varmahlíðarskóla tók Lína sundkennari myndir af nemendum í kafi, en á heimasíðu skólans segir að það hafi eflaus verið gert til þess að sýna þeim hversu dugleg þau væru að geta kafað án nokkurra vandkvæða. Afraksturinn eru bráðskemmtilegar og oft á tíðum draumkenndar myndir. Myndirnar má sjá hér.