Í mörg horn að líta hjá lögreglunni á Sauðárkróki
Það var nóg að gera hjá lögreglunni á Sauðárkróki um helgina en við skulum líta í dagbók lögreglu; „Á laugardagsmorguninn var tilkynnt um umferðaróhapp á Sauðárkróksbraut við Geitagerði. Í ljós kom að ökumaður bílsins var 16 ára og þar af leiðandi ökuréttindalaus.
Hann er jafnframt grunaður um Ölvun við akstur og að hafa tekið bifreiðina ófrjálsri hendi úr iðnaðarhúsnæði á Sauðárkróki fyrr um nóttina. Hinn ungi ökumaður slapp með minniháttar meiðsl en var fluttur á FSA til skoðunar. bifreiðin er töluvert skemmd
Rétt fyrir eitt á laugardeginum barst lögreglu tilkynning um að maður hafi fallið af bifhjóli á Þverárfjallsvegi. Maðurinn var fluttur á Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki til aðhlynningar. Meiðsl hans eru ekki talin alvarleg. Ástæður óhappsins má rekja til þess að hross hljóp yfir veginn og í veg fyrir bifhjólamennina.
Tilkynnt var um rúðubrot á reiðhöllinni og af ummerkjum mátti sjá að einhver hafði farið inn. Ekki var sjáanlegt að neinu hafi verið stolið en rótað hafði verið í dóti.
Á sunnudaginn barst lögreglu tilkynning um að maður væri í farangursrými bifreiðar sem ekið væri innanbæjar á Sauðárkróki. Við skoðun kom í ljós að maðurinn var farinn úr farangursrýminu en viðurkenndi ökumaðurinn að farþeginn hafi farið þangað í fíflagangi. Var brýnt fyrir ökumanninum og farþeganum að slíkt uppátæki væri ólöglegt og stórhættulegt.“