Íbúafundir vegna sameiningar verða um miðjan október
Samstarfsnefnd um mögulega sameiningu Húnaþings vestra og Dalabyggðar boðar til íbúafunda í Dalabúð í Búðardal þriðjudaginn 14. október kl. 17-19 og í Félagsheimilinu Hvammstanga 15. október kl. 17-19. Þá gefst íbúum sveitarfélaganna tækifæri til að hafa áhrif.
Á fundinum verður staðan í sameiningarviðræðunum kynnt og þá verða vinnustofur um stjórnskipulag og þjónustu sameinaðs sveitarfélags.
Sameiningarnefndin hvetur íbúa til að mæta til fundar og taka virkan þátt í samtalinu. Kynningunni verður deilt á netinu en slóð á fundinn verður birt á heimasíðu sveitarfélaganna á fundardag.
Að loknum fundum verður boðið upp á súpu og brauð.