Íbúafundur í Skagafirði um samfélagsleg áhrif virkjanakosta

Horft yfir Villinganesvirkjun og lónið úr lofti. Mynd úr skýrslu um Villinganesvirkjun sem virkjunarkost til umfjöllunar í 3. áfanga rammaáætlunar á vefsíðunni Ramma.is.
Horft yfir Villinganesvirkjun og lónið úr lofti. Mynd úr skýrslu um Villinganesvirkjun sem virkjunarkost til umfjöllunar í 3. áfanga rammaáætlunar á vefsíðunni Ramma.is.

Íbúum í Sveitarfélaginu Skagafirði og Akrahreppi er boðið til opins íbúafundar á Kaffi Krók Sauðárkróki á morgun, laugardaginn 30. janúar, til að ræða samfélagsleg áhrif virkjanakosta í Skagafirði. Til fundarins boðar faghópur 3, sem meta á samfélagsleg áhrif virkjanakosta í þriðja áfanga verndar- og orkunýtingaráætlunar, í samvinnu við við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands. 

„Markmið íbúafundarins er að fá fram sem gleggsta mynd af ólíkum viðhorfum íbúa í Skagafirði til mögulegra samfélagsáhrifa þeirra virkjunarkosta í Skagafirði sem nú eru til umfjöllunar í rammaáætlun. Fundurinn er einn af þremur íbúafundum sem faghópur 3 og Félagsvísindastofnun efna til í þessum tilgangi; sambærilegir íbúafundir voru haldnir á Selfossi 12. desember síðastliðinn, en sá fundur fjallaði einkum um virkjanakosti í neðri hluta Þjórsár, og á Kirkjubæjarklaustri 23. janúar þar sem viðfangsefnið var viðhorf íbúa í Skaftárhreppi til virkjanakosta í sveitarfélaginu,“ sagði Jón Ásgeir Kalmansson, nýdoktor við Háskóla Ísland og formaður faghópsins, í samtali við Feyki. 

Auk Jóns Ásgeirs skipa faghópinn; Ásgeir Brynjar Torfason, hagfræðingur og lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir sálfræðingur og sviðsstjóri Embættis landlæknis, Magnfríður Júlíusdóttir, landfræðingur og lektor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, og Páll Jakob Líndal, umhverfissálfræðingur og nýdoktor við Háskólann í Reykjavík. Faghópnum er ætlað að leggja mat á samfélagsleg áhrif þeirra virkjunarkosta sem eru til umfjöllunar í 3. áfanga rammaáætlunar, sem nú stendur yfir. Í Skagafirði eru það Skatastaðavirkjun C,  Skatastaðavirkjun D og Villinganesvirkjun (frekari upplýsingar um rammaáætlun má finna á http://www.ramma.is/).

„Íbúafundirnir eru meðal annars hugsaðir sem áfangi í rannsóknum á áhrifum virkjanakosta á íbúa og sveitarfélög. Þeir fela í sér vissa nýjung þar eð fundir um þetta efni hafa ekki verið haldnir áður með sambærilegum hætti hér á landi. Það er von faghóps 3 að fundirnir geti verið jákvætt innlegg í málefnalega umræðu um virkjanakosti og samfélag í þeim sveitarfélögum sem þeir eru haldnir,“ sagði Jón Ásgeir ennfremur. Félagsvísindastofnun mun gera grein fyrir niðurstöðum þessarar íbúafunda í skýrslum sem gerðar verða opinberar á vef rammaáætlunar. 

Fundurinn verður frá kl. 13:00-16:00 á Kaffi Krók og er opinn öllum íbúum sveitarfélagsins á meðan húsrúm leyfir. Þátttakendum verður skipt í minni hópa til að ræða áhrif fyrirhugaðra virkjana á samfélagið. Boðið verður upp á veitingar. 

Starfsfólk Félagsvísindastofnunar mun hafa samband við íbúa í sveitarfélaginu en einnig er hægt að skrá sig til þátttöku með því að smella hér.

Fleiri fréttir