Íbúafundur um Jónsmessuhátíð

Íbúa fundur vegna undir búnings Jónsmessuhátíðar á Hofsósi dagana 19. til 20. júní í sumar verður haldinn í Höfðaborg, Hofsósi miðvikudaginn 15. apríl kl 20:00. Íbúar og aðrir velunnarar hátíðarinnar eru hvattir til að mæta.

„Við viljum hvetja fólk til að koma með hugmyndir að dagskrá og taka virkan þátt undirbúningi hátíðarinnar,“ sagði Kristján Jónsson, sem situr í undirbúningsnefnd, í samtali við Feyki í dag. „Fastir liðir verða samt eflaust á sínum stað eins og kjötsúpa og kvöldvaka á föstudeginum, barnaskemmtun og tjaldmarkaður á laugadeginum. Þá verða dansleikir í Höfðaborg, þar sem Halli og Þórunn spila á föstudagskvöldinu og Hljómsveitinn Von og Magni Ásgeirs á laugadagskvöldinu,“ sagði Kristján ennfremur.

„Það verður sem sagt nóg um að vera. Eins gott að fara að taka helgina frá strax. Bregða sér svo á Hofsós á Jónsmessuhátíð með bros á vör og góða skapið!“

Fleiri fréttir