Iða Marsibil býður sig fram í annað til þriðja sæti á lista Framsóknarflokksins

Iða Marsibil Jónsdóttir. Aðsend mynd.
Iða Marsibil Jónsdóttir. Aðsend mynd.

Iða Marsibil Jónsdóttir býður sig fram í 2.-3. sæti á lista Framsóknar til alþingiskosninga í NV kjördæmi. Iða er fædd árið 1977 og uppalin á Bíldudal. Að loknum grunnskóla lá leið hennar á Laugarvatn þar sem hún sótti nám við Menntaskólann. Nokkru síðar á lífsleiðinni stundaði hún nám við Háskólann á Bifröst og útskrifaðist þaðan sem viðskiptafræðingur árið 2006. Árið 2014 flutti hún aftur heim til Bíldudals til að taka þátt í uppbyggingu sem orðið hefur á svæðinu síðustu ár sem hún segir hafa verið í senn krefjandi og skemmtilegt verkefni.

„Ég hef ákveðið að bjóða mig fram í 2.-3. sæti á lista Framsóknar til alþingiskosninga í NV kjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Hafa margir komið að máli við mig á undanförnum vikum og nú er svo komið að ég tel mig tilbúna til að taka slaginn fyrir Framsókn," segir Iða Marsibil í fréttatilkynningu um framboðið. „Ég hef starfað sem skrifstofu- og mannauðstjóri hjá Arnarlaxi síðustu árin en hef viðtæka reynslu úr atvinnulífinu svo sem úr sjávarútvegi, landbúnaði og viðskiptum. Í sveitastjórnarkosningunum 2018 leiddi ég lista Nýrrar Sýnar sem hlaut meirihluta atkvæða og felldi meirihluta Sjálfstæðisflokks sem hafði verið ráðandi í Vesturbyggð um langt skeið. Frá þeim tíma hef ég verið forseti bæjarstjórnar í Vesturbyggð og sit jafnframt í stjórn Vestfjarðastofu. Sveitarstjórnarmálin hafa verið mikill og góður skóli og aukið áhuga minn á frekari stjórnmálaþáttöku. Stjórnmálin eru gríðarlega mikilvæg og eru afl íbúanna til þess að koma á umbótum í samfélaginu. Ég tel mig geta verið góðan fulltrúa samfélagsins í því verkefni.

Ég brenn fyrir málefni landsbyggðarinnar s.s. atvinnumál, samgöngumál og jafnrétti til búsetu. Ég hef fundið mikla samleið með Framsókn þegar kemur að þessum áherslumálum. Íslenskt samfélag er einstakt. Tækifærin eru óþrjótandi og möguleikar einstaklinga og fyrirtækja til vaxtar og velgengni mikil. Með öflugu fólki til forystu í íslensku samfélagi eru okkur allir vegir færir og vil ég leggja mín lóð á þá vogarskál," segir Iða Marsibil.

/Fréttatilkynning

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir