Illugi opnaði sýninguna Brasilíufararnir

Vesturfarasetrið á Hofsósi fagnaði 20 ára afmæli sínu síðast liðinn laugardag. Fjölmargir lögðu leið sína í Félagsheimilið Höfðaborg til að samfagna á þessum tímamótum. Á eftir var haldið í Gamla Kaupfélagið við höfnina, þar sem Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra opnaði sýninguna Brasilíufararnir. Var viðstöddum síðan boðið að þiggja kaffiveitingar í hátíðarsal Vesturfarasetursins í Frændgarði.
Afmælishátíðin, sem haldin var í Félagsheimilinu Höfðaborg, hófst með því að Karlakórinn Heimir hóf upp raust sína og opnaði dagskrána. Helgi Ágústsson, sendiherra og formaður stjórnar Vesturfarasetursins, bauð svo gesti velkomna og stjórnaði hátíðardagskránni. Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og verndari Vesturfarasetursins flutti svo hátíðarávarp.
Því næst flutti Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra ávarp. Í máli Illuga kom fram að langafi hans og langamma hefðu búið í Fljótunum og litlu hefði munað að þau flyttu til Vesturheims. Sturla Sigurjónsson, sendiherra Íslands í Kanada flutti einnig ávarp. Þá mæltu Robert Fredrickson og Mallory Swanson mælir fyrir munn fólks af íslenskum ættum í Kanada Bandaríkjunum. Loks flutti Valgeir Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Vesturfarasetursins ávarp og Karlakórinn Heimir lauk dagskránni með söng.
Þeir sem tóku til máls voru einróma um að með stofnun Vesturfarasetursins og rekstri þessi hefði verið unnið grettistak. Þá töluðu fulltrúar fólks af íslenskum ættum í Kanada og Bandaríkjunum um hversu dýrmætt það væri samlöndum þeirra að geta aflað upplýsinga um uppruna sinn og heimsótt staði sem það rekur ættir sínar til. Síðar í sumar verður í Feyki opnuviðtal við þau Valgeir Þorvaldsson, stofnanda og framkvæmdastjóra Vesturfarasetursins og eiginkonu hans, Guðrúnu Þorvaldsdóttur.
Nánar er sagt frá hátíðarhöldunum í máli og myndum í 27. tölublaði Feykis sem kom út í dag.