Inflúensubólusetning enn í gangi
Skagfirðingar geta ennþá fengið bólusetningu gegn þeirri inflúensu sem árlega gerir strandhögg á okkur Frónbúa með tilheyrandi afleiðingum. Þeir sem eru 60 ára og eldri og einnig þeir sem tilheyra sérstökum áhættuhópum fá bóluefnið frítt, en þurfa samt sem áður að greiða komugjald.
Heilsugæslan vill minna þá á sem hafa afsláttar- og/eða örorkuskírteini að framvísa þeim við komuna.
Bólusett er alla daga frá 8-16