Ingó veðurguð veðurtepptur á Sauðárkróki
Ingó veðurguð og leikmenn hans í fótboltaliði Hamars frá Hveragerði hugðust fara til Akureyrar í vikunni þar sem þeir ætluðu að æfa og keppa. Ekki voru veðurguðirnir þeim hliðhollir að þessu sinni, Öxnadalsheiðin lokuð með öllu og þeir veðurtepptir á Sauðárkróki.
„Þeir dóu þó ekki ráðalausir og komust á Sauðárkrók og í gær æfðu þeir á aðalæfingasvæði 1. deildarliðs Tindastóls, litlum sparkvelli. Það var fjör á æfingunni og vel tekið á því þótt veður væri hið versta og snjór yfir vellinum. Þeir allra hörðustu voru í stuttbuxum á æfingunni og skemmtu sér vel,“ segir á síðunni Fótbolti.net.
Strákarnir stefna á að komast til Akureyrar í dag en fleiri myndir af æfingunni má sjá á Fótbolti.net.