Íslensk lög og ljóð á konudaginn
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
22.02.2014
kl. 11.31
Kvennakórinn Sóldís heldur sína árlegu konudagstónleika á morgun, sunnudaginn 23. febrúar kl. 15:00 í Menningarhúsinu Miðgarði. Að loknum tónleikum bjóða þær gestum til kaffiveislu eins og hefð gerir ráð fyrir.
Stjórnandi kórsins er Sólveig S. Einarsdóttir og undirleikari er Rögnvaldur Valbergsson, auk þess stíga þrír einsöngvarar á stokk. Söngskrá þessa vetrar einkennist af íslenskum lögum og ljóðum, allt frá sígildum þjóðlögum til sígildra dægurlaga. Þess má geta að undirleikari kórsins, Rögnvaldur, hefur útsett nokkur þeirra laga sem sungin verða. Menningarsjóður Norðurlands vestra styrkir þessa tónleika.