Íslenska landnámshænan í Landanum
Næstkomandi sunnudagskvöld verður sýnt í Landanum á Rúv frá ferð þáttagerðamanna á Vatnsnes þar sem Júlíus og hinar geysifallegu landnámshænur á Tjörn voru heimsóttar. Í sumar hefur gestagangur verið mikill á Tjörn enda margt forvitnilegt að sjá hjá landnámshænunum og ræktanda þeirra.
-Hingað kom úrvalslið, tók myndir, fræddist og spurði um Landnámshænuna, sögu hennar ræktun og fl. og nú er komið að því að sýna afraksturinn, segir Júlíus.
Júlíus heldur úti heimasíðu um ræktunina en þar segir að fólk renni mikið heim að bæ til að skoða og spyrja og fræðast um fuglana en margir íhuga að koma sér upp litlum kofa og fá sér nokkrar hænur til gagns og gamans. -Mér finnst þessi áhugi vera að aukast mjög mikið undanfarin ár og er það vel. Þá er einnig mikið spurt eftir unghænum sem komnar eru að eða í varp sem og búnað og aðstöðu fyrir fuglana, segir Júlíus á síðunni.