Israel Martín Conception í viðtali á Tindastóll.is

„Það fyrsta sem ég gerði var að fara á kortið og finna hvar Sauðárkrókur væri eiginlega. Mér fór strax að finnast þetta mjög áhugavert, því í gegn um starf mitt sem þjálfara, er svo mikið hægt að gera til að hjálpa krökkum í að verða betri leikmenn og deila sínum aðferðum með öðrum þjálfurum,“ ... „Það er líka mjög gaman að kynnast nýju fólki og kynnast lifnaðarháttum fólks í öðrum löndum svo ég þakka Borce og hans félögum kærlega fyrir þetta boð, fólkið á Sauðárkróki sem ég kynntist var orðið eins og fjölskylda mín í þessa viku sem við vorum þarna,“ segir Israel aðspurður um fyrstu viðbrögð hans eftir að hafa verið boðið að koma til Sauðárkróks.

„Ég er mjög þakklátur að hafa fengið tækifæri til að koma hingað og kynnast landi og þjóð,“ segir Israel og bætir við að honum hafi fundist það ótrúlega magnað að hér skyldi vera dagsljós allan sólarhringinn, því á hann ekki að venjast og í raun áttu sumir þjálfaranna í mesta basli með að hafa lag á svefninum þegar þeir voru hér.

Israel vildi koma skilaboðum til krakkanna í búðunum og biður fyrir kærar kveðjur til þeirra með þakklæti fyrir skemmtilegan tíma og árangursríkan. Hann vill líka koma einu heilræði til þeirra; „Berðu virðingu fyrir íþróttinni, þá ber hún virðingu fyrir þér.“

Sjá viðtalið HÉR

Fleiri fréttir