Jafnréttisdagar háskólanna

Jafnréttisdagar háskólanna er árlegur viðburður sem haldinn er í öllum íslensku háskólunum samtímis. Að þessu sinni standa þeir yfir dagana 1.-5. október.  Á jafnréttisdögum er markmiðið að tvinna saman hinar ýmsu víddir jafnréttis og skoða fjölbreytileika, forréttindi, þöggun, jafnréttisbaráttu, vald og mismunun.

Í tilefni Jafnréttisdaga 2018 er boðið upp á opið málþing í Háskólanum á Hólum þriðjudaginn 2. október, kl. 13-14. Málþingið er hluti af fyrirlestraröð ferðamáladeildar háskólans sem nefnist „Vísindi og grautur“ og fer fram í stofu 205 í Skólahúsinu á Hólum.

Á málþinginu mun Tryggvi Hallgrímsson frá Jafnréttisstofu flytja erindi sem hann nefnir „Jafnréttisstarf sem breytingastjórnun í stórum og minni skipulagsheildum“.

Nánar: Í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla er sérstaklega fjallað um skyldur atvinnurekenda og stéttarfélaga til að vinna að jafnri stöðu kynjanna á vinnumarkaði. Þá segir einnig að fyrirtæki sem hafa fleiri en 25 starfsmenn skuli gera sérstaka jafnréttisáætlun með framkvæmdaáætlun. Þannig getur stærð skipulagsheilda sagt mikið til um þær kröfur sem þær þurfa að uppfylla. 

Síðustu mánuði hefur mikið verið rætt um tvö svið jafnréttisstarfs; áskoranir sem tengjast jafnlaunamálum og vandamál sem tengjast kynferðislegri áreitni á vinnustöðum. Í erindi sínu og umræðum mun Tryggvi Hallgrímsson, félagsfræðingur og sérfræðingur á Jafnréttisstofu, fjalla um kosti þess að vinna jafnréttistarf sem hluta af stöðugri breytingastjórnun skipulagsheilda og tækifærin sem felast í að nýta ramma jafnréttisáætlana í slíku starfi.

Allir velkomnir!

 

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir