Jafnt í Boganum

Lið Tindastóls mátti sætta sig við jafntefli í fyrsta heimaleiknum í 1. deildinni sem fór fram í Boganum á Akureyri í gær. Andstæðingurinn var Völsungur frá Húsavík og varð niðurstaðan 1-1 jafntefli.

Húsvíkingar byrjuðu leikinn betur og fengu vítaspyrnu eftir 8 mínútna leik og skoraði Marko Biagojevic úr spyrnunni. Eftir þetta voru gestirnir heldur sterkari og skoruðu mark sem var þó réttilega dæmt af því brotið var á varnarmanni Tindastóls. Stólarnir komust betur inn í leikinn þegar á leið og voru sterkari aðilinn þegar Steven Beattie jafnaði leikinn með glæsilegu marki.

Staðan 1-1 í hléi og það voru Tindastólsmenn sem voru ívið sterkari í síðari hálfleik en Húsvíkingar beittu skyndisóknum. Bæði lið fengu ágæt færi til að ná sigurmarkinu en allt kom fyrir ekki.

Fleiri fréttir