Jafntefli á aðalvellinum í gærkveldi
Í gærkveldi mættust Tindastóll og KA á Sauðárkróksvelli og lauk leiknum með 2-2 jafntefli þar sem mikið gekk á í fyrri hálfleik en seinni hálfleikur var heldur tíðindalítill.
Tindastólsmenn komust yfir eftir rúman hálftíma þegar að Steven Beattie skoraði úr vítaspyrnu. KA menn voru þó ekki lengi að jafna metin þegar að leikmaður Tindastóls skoraði sjálfsmark. Stuttu seinna kom Atli Sveinn Þórarinsson, fyrirliði, KA yfir eftir hornspyrnu. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks var önnur vítaspyrna dæmd á KA og Ivan fékk sitt annað gula spjald og Tindastólsmenn jöfnuðu metin og þar við sat. ka-sport.is
Tindastóll 2 - 2 KA
1-0 Steven Beattie ('31) Vítaspyrna.
1-1 Sjálfsmark Tindastóll ('35)
1-2 Atli Sveinn Þórarinsson ('39)
2-2 Steven Beattie ('45) Vítaspyrna.
Næsti leikur hjá meistaraflokki karla verður fimmtudaginn 4. júlí, en þá mæta Tindastólsmenn Víking R. á útivelli.