Jafntefli á móti Njarðvíkingum
Lið Njarðvíkur sótti Tindastól/Hvöt heim á Blönduósi í gær og fór þaðan aftur með eitt stig í farteskinu en heimamenn sátu eftir með annað stig. Jafnræði var með liðunum allan leikinn og jafntefli líklega sanngjörn úrslit. Það voru heimamenn sem skoruðu fyrsta markið og það var gott einstaklingsframtak Árna Einars sem fór með boltann upp völlinn og skoraði.
Gestirnir jöfnuðu síðan undir lok fyrri hálfleiks en það mark kom að sögn fyrir hálfgerðan klaufaskap okkar manna í vörninni.
Fleira markvert gerðist ekki í leiknum.og hvort lið fékk aðeins eitt stig í þessari baráttu sem nú er hafin.
Staða efstu liða er nú þannig:
1.sæti Höttur 30 stig
2.sæti Hamar 29 stig
3.sæti Reynir 28 stig
4.sæti Tindastóll/Hvöt 27 stig