Jafntefli í Njarðvík

Strákarnir okkar í Tindastól/Hvöt mættu Njarðvíkingum á þeirra heimavelli í gærkvöld og fóru leikar þannig að liðin skildu jöfn 1 – 1. Að sögn okkar manna voru aðstæður í Njarðvík hundleiðinlegar til að spila fótbolta rok og kuldi.

En svona er skrifað um leikinn; “Í fyrri hálfleik voru Njarðvíkingar sterkari og voru sérstaklega með nokkra yfirburði á miðjunni. Þeir sköpuðu sér betri færi og náðu síðan að skora á loka mínútu fyrri hálfleiks.

Í seinni hálfleik var meira jafnræði með liðunum en á 60 mín. komumst við mun meira inn í leikinn og vorum líklegri til að skora.

Tindastóll/Hvöt átti nokkur hættulegar sóknir og góðar hornspyrnur en upp úr slíkri skorar Ingvi Hrannar gott mark á 85 mínútu og tryggði gott stig á erfiðum útivelli við erfiðar aðstæður.

Gísli var í markinu. Sveinbjörn og Hallgrímur voru bakverðir en Hallgrímur fór útaf meiddur og í hans stað kom Stefán Hafsteinsson. Sveinbjörn fór síðan útaf og í hans stað kom Arnar Skúli. Bjarki Már og Böddi voru miðverðir og á miðjunni voru þeir Árni Einar og bræðurnir Árni og Atli. Árni þurfti að fara útaf meiddur og kom tenniskappinn Arnar Sig inn í liðið. Á köntunum lék o u Ingvi Hrannar og Benni og Kolli var fremstur. Þeir varamenn sem ekki komu inná voru Hilmar E g Arnar Magnús“

Fleiri fréttir