Jakob enn ósigraður

Fjórða umferð Meistaramóts Skákfélags Sauðárkróks fór fram í gærkveldi. Jakob Sævar Sigurðsson og Hörður Ingimarsson gerðu jafntefli í mikilli baráttuskák. Að lokinni 4. umferð er Jakob efstur með þrjá og hálfan vinning.

Þá sigraði Þór Hjaltalín Einar Örn Hreinsson, Birkir Már Magnússon sigraði Guðmund Gunnarsson og loks sigraði Jón Arnljótsson Sigurð Ægisson.

Sem fyrr segir er Jakob efstur en fast á hæla honum fylgja Birkir Már Magnússon með þrjá vinninga og Jón Arnljótsson og Hörður Ingimarsson með tvo og hálfan vinning. Flestir hinna hafa tvo vinninga.

Í lokaumferðinni mætast Jakob Sævar og Birkir Már í hreinni úrslitaskák um sigur í mótinu. Jón Arnljótsson mætir Þór Hjaltalín, Unnar Ingvarsson mætir Herði Ingimarssyni og þeir Einar Örn Hreinsson og Guðmundur Gunnarsson leiða saman hesta sína.

Úrslit og stöðu má nálgast hér.

Fleiri fréttir