Jakob færði brúðgumann til nútímans
Sæluvikustykki Leikfélags Sauðárkróks, Svefnlausi brúðguminn, er komið vel til ára sinna því það var sýnt fyrst árið 1924 í Berlín. Jakob S. Jónsson leikstjóri tók að sér að færa verkið til nútímans og Skagafjarðar og var inntur eftir því hversvegna ráðist hefði verið í staðfærslu á verkinu:
" Það er nú einu sinni þannig að verk þola misvel að eldast og Svefnlausi brúðguminn er skrifaður og þýddur á þeim tíma þegar var til dæmis eðlilegt að þéra fólk og þjónustufólk ávarpaði húsfreyjuna með orðunum "náðug frúin" og menn sendu símskeyti útum hvippinn og hvappinn. Þetta er nú allt fremur framandlegt í eyrum nútímamannsins. Það eru ekki margir nú á dögum, sem kunna að þéra og ef einhver segði "náðug frúin" við konu, sem sennilegast er að sé útivinnandi og margfráskilin, þætti það eflaust einkennilegt. Og símskeyti eru varla send nú á tímum. Það er því bæði leikarinn og áhorfandinn sem þarf að taka til sín fornan menningarheim til þess að njóta sögunnar - og þegar um Svefnlausa brúðgumann er að ræða, þá skiptir einfaldlega meira máli að sagan skili sér - þessi eilífi misskilningur milli manna og öll sú flækja sem verður þegar menn fara að taka kolvitlausar ákvarðanir til að bjarga sér úr hverju sjálfskaparvítinu á fætur öðru. Nú, ég fór þá leið að fara eins konar milliveg - það eru notaðir farsímar í stað skeytasendinga, persónur leiksins þúast og stéttaskiptingin sem ríkti fyrir tæpum eitthundrað árum sýnir sig ekki á sama hátt. Það er vonandi að þetta gangi upp og að áhorfendum þyki verkið í nútímabúningi jafn skemmtilegt og okkur hefur fundist á æfingatímanum."
Aðspurður hvort verkið eigi enn við í dag stendur ekki á svari hjá Jakobi:
"Erum við mennirnir ekki enn að gera mistök? Erum við ekki enn að koma okkur í vandræði, sem reynast botnlaus sjálfskaparvíti og sem við reynum að klóra okkur úr - og tökum þá einatt rangar ákvarðanir. Og er þetta ekki í rauninni alltaf jafn fyndið, þegar öllu er á botninn hvolft? Við reyndar búum ekki við það að foreldrar ákveði hvaða manni dætur þeirra skulu giftast, en burtséð frá því þá eiga þessir mannlegu eiginleikar við enn í dag. Og það er hressandi að geta komið í leikhúsið og helgið að gloríum persónanna í Svefnlausa brúðgumanum og leyft sér að gleyma eitt andartak öllum gloríunum, sem maður sjálfur hefur komið til leiðar."
Miðasala er hafin í síma 849-9434, sjá nánar á www.skagafjordur.net/LS