Jákvæðni gagnvart sameiningu
Á þriðjudag voru kynningarfundir um sameiningu Bæjarhrepps og Húnaþings vestra haldnir á Hvammstanga og Borðeyri. Fundurinn á Borðeyri hófst kl. 16:00 og fundurinn á Hvammstanga kl. 20:00. Mæting á fundina var með ágætum og var töluvert um fyrirspurnir og umræður.
Töluvert var um fyrirspurnir og umræður á fundunum en samkvæmt Norðanáttinni virðist helsta áhyggjuefnið varðandi sameininguna tengjast skólamálum og þá einkum vegalengdum í keyrslu. Hins vegar var ekki annað að sjá en að heimamenn væru almennt jákvæðir fyrir sameiningunni.
Á Norðanáttinni gefur að líta nokkrar myndir frá fundinum á Hvammstanga.