Jóhann Skúlason í viðtali í Hestafréttum
Á stóru hestamóti sem fram fór í Flyinge í Svíðþjóð um helgina náði Skagfirðingurinn Jóhann Skúlason frábærum árangri á gæðingnum Hnokka frá Fellskoti. Hestafréttir voru á staðnum og greindu frá gangi mála á mótinu og á vefsíðu þeirra er viðtal við Jóhann þar sem hann er spurður m.a. "hvað hann er að gera sem hinir eru ekki að gera".
Jóhann er einn besti töltsýningarmaður heims enda orðið heimsmeistari í þeirri grein á heimsmeistaramótum liðinna ára. Hægt er að sjá viðtalið við Jóhann HÉR