Jólaball Lions í íþróttahúsinu á Sauðárkróki í dag
feykir.is
Skagafjörður
28.12.2010
kl. 13.33
Árlegt Jólabarnaball Lions verður í íþróttahúsinu á Króknum í dag þriðjudaginn 28. desember og hefjast herlegheitin klukkan fimm. Að venju munu félagarnir Geirmundur og Rögnvaldur spila undir dansi í kringum jólatréð auk þess sem heyrst hefur að samningar hafi náðst við jólasveina sem enn luma á glaðningi í pokahorni sínu.
Fleiri fréttir
-
Tindastólsmenn fá nágranna Fjallabyggðar í heimsókn
Lið Tindastóls fær til sín nágranna KF úr Fjallabyggð í heimsókn í dag, miðvikudaginn 10. júní. Stólarnir hafa farið frábærlega af stað enda eru þeir eina taplausa liðið í deildinni eftir sex umferðir. Leikurinn fer fram á Sauðárkróksvelli og hefst kl. 19:15.Meira -
Ragnheiður Erla er nýr oddviti Skagastrandar
Fundur var haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar í gær en þar var meðal annars kosning oddvita og varaoddvita sveitarfélagsins nú að loknum sveitarstjórnarkosningum. Lagt var til að Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, sem er efst á lista Samfylkingar og óháðra, yrði kjörin oddviti og var það samþykkt með fimm atkvæðum. Alls sitja fimm í sveitarstjórn Skagastrandar.Meira -
Gallery Trefill verður með sveitamarkað 20. júní
Sigurlaug Guðmundsdóttir opnaði Gallery Trefill á seinasta ári og starfsemi þess gekk vel. Þar eru handprjónaðar vörur eftir hana, fleiri á Hofsósi og í nágrenninu. Galleríið er í litlu húsi við hliðina á gömlu skemmunum á Óslandi en hugmyndin er sú að hafa makaði í þeim samhliða galleríinu. Einnig er kominn söluvagn við hlið gallerísins svo hægt er að bjóða fólki upp á kaffi og meðlæti á pallinum fyrir utan á góðviðris dögum.Meira -
Málið snýst um stjórnunarréttinn | Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 09.06.2026 kl. 14.46 oli@feykir.isKveðið er á um fullt vald Evrópusambandsins yfir vernd auðlinda sjávar í Lissabon-sáttmálanum, grundvallarlöggjöf þess (d-liður, 3. greinar TFEU). Enn fremur að einungis sambandið geti sett lög um þær. Ríki Evrópusambandsins geti það ekki nema með leyfi sambandsins eða til þess að framfylgja löggjöf þess. Eina leiðin til að komast undan yfirstjórn Evrópusambandsins innan þess er varanleg undanþága (opt-out) frá henni. Slíkar undanþágur hafa hins vegar ekki verið í boði fyrir umsóknarríki. Aðeins tímabundnar undanþágur og „sérlausnir“ sem breyta engu um að valdið fer til sambandsins.Meira -
Stuð og stemning fram undan á Hofsósi
Bæjarhátíðin Hofsós heim mun standa yfir dagana 18.- 22. júní næstkomandi og hægt er að segja að nóg verði um að vera. Dagskráin er stútfull en í ár verður hægt að kíkja á markað í Höfðaborg, sjá sýningu hjá Brúðubílnum og skella sér í gusu í sánuvagni svo eitthvað sé nefnt. Hátíðin eins og hún er í dag hefur verið haldin síðan árið 2018 en bæjarhátíðir á Hofsósi er hægt að rekja til 1999 þegar haldið var upp á Jónsmessuhátíð.Meira
