Jólakort með fallegum myndum úr Skagafirði
Nýprent hefur gefið út jólakort með myndum úr Skagafirði og ættu kortin þegar að vera komin í sölu í Skagfirðingabúð og í útibúum Kaupfélags Skagfirðinga í Varmahlíð og Hofsósi. Að þessu sinni voru prentaðar þrjár gerðir af kortum og eru þau seld þrjú saman í pakka.
Myndirnar eru teknar á Hólum í Hjaltadal, við Víðimýrarkirkju og á Kirkjutorgi á Sauðárkróki. Það eru Hinir sömu sf. sem tóku myndirnar. Kortin eru í stærðinni 15x15 sm og að sjálfsögðu fylgja umslög með kortunum.
Nýprent gaf einnig út jólakort fyrir jólin í fyrra og er eitthvað ennþá fáanlegt af þeim. Þeir sem vilja nálgast eina tegund af kortunum, eða hafa einhverjar sérstakar þarfir, geta leitað í Nýprent til að fá óskir sínar uppfylltar.