Jólakvöldi í Kvosinni á Hofsósi frestað um óákveðinn tíma

Þessi selkópur heimsótti Kvosina á Hofsósi síðasta vetur. Mynd: MBE.
Þessi selkópur heimsótti Kvosina á Hofsósi síðasta vetur. Mynd: MBE.

Jólakvöldi sem vera átti í Kvosinni í Hofsósi í kvöld hefur verið frestað um óákveðinn tíma, vegna veðurs. Átti það upphaflega að vera á þriðjudaginn í síðustu viku en var einnig frestað þá vegna veðurútlits.

„Því miður er veðrið en að stríða okkur og hefur verið tekin ákvörðun um að taka skynsemina fram yfir fífldirfskuna og fresta um óákveðin tíma. Treystum því að þegar veðrið verður orðið gott að fólk bregði undir sig betri fætinum og kíki í Hofsós,“ segir í tilkynningu um viðburðinn, sem er á vegum samtakanna Byggjum upp Hofsós.

Fleiri fréttir