Jólalag dagsins - Aleinn um jólin

Á stórtónleikunum Jólagestum Björgvins árið 2017 sungu þeir meistarar Björgvin Halldórsson og Stefán Karl Stefánsson saman lagið “Aleinn um jólin”  í Hörpu og vakti atriðið mikla lukku. Lagið var samið fyrir plötuna Jól í Latabæ en eins of flestum er kunnugt fór Stefán með hlutverk Glanna glæps.

Í ágúst 2018 lést Stefán Karl eftir tveggja ára baráttu við illvígt gallgangakrabbamein þá 43 ára. Flytjendur lagsins og Sena Live ákváðu að heiðra minningu Stefáns Karls með því að  gefa lagið út og munu allar tekjur af laginu renna til barna Stefáns Karls.
Hlusta má á lagið á Spotify
Lagið samdi Máni Svavarsson en textinn er eftir Halldór Gunnarsson.

 

Fleiri fréttir