Jólin kvödd í Hrútafirði

Jólin voru kvödd í austanverðum Hrútafirðinum með brennu á Gilsstöðum sl. laugardag. Eftir brennu og flugeldasýningu var haldið í Barnaskólann að Reykjum þar sem Kvenfélag Staðarhrepps bauð upp á kaffi og með því.

Íbúar áttu saman notalega kvöldstund, en hefð er fyrir því að fólk í Hrútafirði hittist og kveðji jólin í kringum þrettándann. Brennustjórinn Þorsteinn Sigurjónsson á Reykjum fór fremstur í flokki og tendraði bálið með dyggri aðstoð Ásgeirs í Brautarholti.

Í kaffisamsætinu að Reykjum leiddi Pálína Fanney Skúladóttir fólk í söng svo undir tók í firðinum. Gunnar bóndi í Hrútatungu færði Kvenfélaginu innrammaðar myndir að gjöf, sem teknar hafa verið í Hrútatungurétt í gegnum tíðina.

Hér má sjá fleiri skemmtilegar myndir frá þrettándanum í austanverðum Hrútafirðinum sem Karl B. Örvarsson sendi Norðanátt.

Fleiri fréttir