Jón Hjálmar og og Svend Emil hlutu bronsverðlaun

Jón Hjálmar Ingimarsson og Svend Emil Busk Friðriksson, nemendur í 6. bekk Varmahlíðarskóla, hlutu bronsverðlaun í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna fyrir hugmynd sína af plastþjöppu. Veitt voru verðlaun í þremur aldursflokkum 5., 6. og 7. bekk og var tilkynnt um úrslitin á lokahófi NKG í Háskólanum í Reykjavík í gær.

Í fréttatilkynningu segir að það var Mennta- og menningarmálaráðherra Illugi Gunnarsson sá um afhendingu farandbikara NKG og Dr. Ari Kristinn Jónsson um afhendingu aðalverðlauna.

„Hugmyndasmiðir stigu á stokk eftir framsöguþjálfun í vinnusmiðju frá JCI og heilluðu alla upp úr skónum með hugmyndum sínum og ræðusnilld,“ segir í tilkynningunni.

Allir þátttakendur í úrslitum í NKG2015 fengu ýmis glæsileg verðlaun auk verðlaunagrip NKG, merktan eigin nafni á gullplötu ásamt viðurkenningarskjal frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Fleiri fréttir