Jónas Rafn Íslandsmeistari í hástökki 16-17 ára

Á heimasíðu frjálsíþróttadeildar Tindastóls segir frá því að Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum, fyrir 15-22 ára, fór fram á Akureyri helgina 27.-28. ágúst. Jónas Rafn Sigurjónsson UMSS varð Íslandsmeistari í hástökki (16-17) og piltasveit UMSS (16-17) sigraði einnig í 4x100m boðhlaupi. Alls vann lið UMSS 2 gull-, 11 silfur- og 7 bronsverðlaun á mótinu.

Verðlaunahafar UMSS:

Jónas Rafn Sigurjónsson (16-17) varð Íslandsmeistari í hástökki (1,81m), hann varð einnig í 2. sæti í langstökki og þrístökki.

Piltasveit UMSS (16-17) varð Íslandsmeistari í 4x100m boðhlaupi (47,02sek). Í sveitinni voru Daníel Þórarinsson, Ísak Óli Traustason, Jónas Rafn Sigurjónsson og Jóhann Björn Sigurbjörnsson.

Þorgerður Bettína Friðriksdóttir (15) varð í 2. sæti í 300m grind, 400m og hástökki.

Jóhann Björn Sigurbjörnsson (16-17) varð í 2. sæti í 100m og 200m, og 3. sæti í 3000m.

Ísak Óli Traustason (16-17) varð í 2 sæti í 110m grind og 3. sæti í hástökki, þrístökki og sleggjukasti.

Guðjón Ingimundarson (18-19) varð í 2. sæti í 400m og 3. sæti í 200m.

Daníel Þórarinsson (16-17) varð í 2 sæti í 800m.

Guðrún Ósk Gestsdóttir (16-17) varð í 2. sæti í þrístökki.

Laufey Rún Harðardóttir (18-19) varð í 3. sæti í kúluvarpi.

Stúlknasveit UMSS (18-19) varð í 3. sæti í 4x100m boðhlaupi.

Fleiri fréttir