Jónsmessuhátíð á Hofsósi

Dagskrá Jónsmessuhátíðar verður að venju glæsileg, en hún verður haldin 16.-18. júní nk. og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hátíðin hefst fimmtudagskvöldið 16. júní með opnun ljósmyndasýningu Jóns Hilmarssonar í grunnskólanum á Hofsósi en svo verður efnt til miðnæturhlaups frá sundlauginni.

Margir viðburðir verða svo á þjóðhátíðardaginn 17. júní og daginn þar á eftir og má nefna  hópreið Svaðafélaga um þorpið, Jónsmessugöngu um Þórðarhöfða og kvöldöku með Rögnvaldi gáfaða Leikfélagi Hofsóss og Ártúnasystrum. Þá verður hið vinsæla knattspyrnumót á laugardeginum, grillveisla, dráttarvélakeppni, leiktæki fyrri börn og tjaldmarkaður, smalakeppni og að sjálfsögðu stórdansleikur í lok dags með hljómsveitinni Von ásamt Siggu Beinteins.

Margt fleira er á dagskrá og er hægt að finna það HÉR.

Fleiri fréttir