Kætin við völd á konukvöldi
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
31.01.2014
kl. 09.22
Það ríkti mikil kátína á vel sóttu konukvöldi sem Nemendafélag FNV stóð fyrir í gærkvöldi. Stúlkur úr 10. bekk og Fjölbrautarskólanum fjölmenntu ásamt mæðrum og fleiri konum og skemmtu sér vel undir veislustjórn Siggu Klingenberg.
Boðið var upp á óáfengan kokteil og léttar veitingar og einnig flutti Ása Svanhildur Ægisdóttir tónlistaratriði. Óhætt er að segja að Sigga hafi farið á kostum og hélt hún uppi feiknarstemmingu í salnum allan tímann. Gestir lögðu líka sitt af mörkum og tóku virkan þátt í fjörinu með Siggu, m.a. strákarnir úr stjórn nemendafélagsins sem voru einu karlmennirnir á svæðinu.