Kaffi Króks Rallý fór fram um helgina
Þriðja umferð Íslandsmótsins í rallý fór fram um helgina og Bílaklúbbur Skagafjarðar stóð að því með aðstoð góðra. Keppnin fór vel fram og allir skemmtu sér konunglega.
Fyrsti keppnisdagur Skagafjarðarrallsins fór vel fram á föstudaginn sl. og mjótt var á munum milli sæta í keppninni. Ræst var frá Skagfirðingabúð á Sauðárkróki kl 18:00 og fyrsta sérleiðin var ekin til vesturs um gamla veginn Þverárfjalll. Þverárfjallið var blautt og hált og akstursaðstæður mjög krefjandi. Næstu sérleiðir voru síðan eknar innan bæjarmarka Sauðárkróks, þar sem keppendur geystust um hafnarsvæðið.
Staðan eftir fyrsta daginn var þannig að systkinin Daníel og Ásta voru í fyrsta sæti með 7 sekúnda forskot á Baldur og Aðalstein. Í þriðja sæti fjórum sekúndum á eftir öðru sætinu voru Valdimar Jón og Skafti.
Á síðari keppnisdeginum sem var á laugardaginn voru eknar sérleiðir um Mælifellsdal, Vesturdal og loks um Nafir sem liggja ofan Sauðárkróks.
Skemmtilegt er frá því að segja að í hópi keppenda var nýlíði sem þreytti frumraun sína í rallakstri, Arnkell Arason, með föður sinn sér við hlið, Ara Arnórsson sem hefur öllu lengri reynslu af íþróttinni.
Í keppendahópnum eru einnig systkyni, feðgin og feðgar svo segja má að áhugi á ralli leggist þyngra á sumar fjölskyldur en aðrar.
Skagafjarðarralli lauk á laugardaginn og úrslit eru komin inn á vefsíðu Bílaklúbbs Skagafjarðar og hægt er að skoða þau hér.