Kaffi Krókur í þýska sjónvarpinu
Síðasta haust dvöldu þýskir kokkanemar á Sauðárkróki á vegum Kelvin film, sem vann að þáttagerð fyrir þýsku sjónvarpsstöðina ZDF. Sáu þeir m.a. um að elda fyrir gesti og gangandi á Kaffi Krók. Þættirnir eru nú komnir í sýningu í Þýskalandi og má nálgast þá hér.
Fyrr um sumarið höfðu kvikmyndargerðarmennirnir skoðað ýmsa staði á landinu og leist best á Sauðárkrók. Þættirnir voru því gerðir á Kaffi Krók, í góðu samstarfi við Kristínu Magnúsdóttur eiganda staðarins. Þátttakendur voru fjórir ungir kokkanemar og vissu þau einungis að ferðinni væri heitið til Íslands, en ekki hvert. Auk eldamennskunnar á Kaffi krók þurfta þau að leysa ýmis verkefni, kynna sér íslenska matarmenningu og spreyta sig á því að elda úr íslensku hráefni.
Tengdar fréttir: