Kaffikerlingin á Hólum á morgun

Á morgun, fimmtudaginn 13. mars kl. 19:00 – 21:30 verður Kaffihúsið Kaffikerlingin á Hólum í Hjaltadal, nánar tiltekið Undir Byrðunni. Að þessu sinni verður boðið upp á gómsæta kjúklingasúpu og meðlæti, marengsbombur, ilmandi kaffi og pönnukökur. Allar veitingar eru búnar til og bornar fram af nemendum 9. bekkjar Grunnskólans austan Vatna.

Á staðnum verður barnahorn, hægt verður að kaupa happdrættismiða og auðvitað eintóm gleði, eins og segir í tilkynningu frá krökknum sem standa fyrir kaffihúsinu.

Kaffihúsið er hluti af nýsköpunarverkefni og fjáröflun bekkjarins sem nemendur hafa lagt mikla vinnu í. Reynt er að hafa nýjungar á hverju kaffihúsi, síðast var jólamarkaður og núna verður gestum boðið upp á léttan kvöldverð.

Að sögn nemenda hefur Kaffihúsaverkefnið verið þeim mjög lærdómsríkt enda hafa þeir lært heilmargt um markaðssetningu, meðhöndlun fjármuna og kaffihúsarekstur í ferlinu.

Nú þegar hafa krakkarnir haft eitt kaffihús á Hofsósi og ætlunin er að hafa þriðja kaffihúsið í Fljótunum, þegar bændur verða farnir að sjá fyrir endann á sauðburði.

Nánari upplýsingar er að finna á fésbókarsíðu hópsins.

 

 

Fleiri fréttir