Kalli Jóns og Palli Kolbeins í nýrri afreksnefnd Körfunnar

Karl Jónsson, Tindastól, er einn meðlima nýrrar afreksnefndar Körfuknattleikssambands Íslands, sem ákveðið var að setja á laggirnar á Körfuknattleiksþingi sem haldið var á Sauðárkróki sl vor. Hlutverk nefndarinnar er að halda utan um allt afreksstarf KKÍ, öll landsliðsmál yngri- og eldri landsliða, úrvalsbúðir, afreksbúðir, verkefni fyrir hávaxna leikmenn og þar fram eftir götunum. Fyrsti fundur nefndarinnar var í gær og var það yfirlitsfundur yfir afreksmál KKÍ og rætt um hlutverk nefndarinnar.

Meðal þess sem á dagskrá nefndarinnar er, er að gera áætlun til nokkurra ára um starfsemi landsliða Íslands, ráðning þjálfara yngri landsliðanna og í raun utanumhald alls afreksstarfs sambandsins. Reglugerð nefndarinnar má finna á þessari slóð http://www.kki.is/reglugerdir.asp?reglugerd=10

Páll Kolbeinsson er formaður nefndarinnar, en aðrir í henni eru auk Karls; Anna María Sveinsdóttir, Guðbjörg Norfjörð og Svali Björgvinsson.

Fleiri fréttir