Kannast þú við þetta umslag?
Þetta umslag fór á vitlaust heimilisfang. Sá sem fékk póstsendinguna vill endilega koma henni á réttan stað og óskar eftir upplýsingum. Umslagið var póstlagt á Sauðárkróki þann 3. nóvember 2015.
„Eitthvað er ekki rétt á umslaginu. Spurt er: En hvað er rétt heimilisfang eða nafn viðtakanda?“ spyr Bjarni Dagur. Ef þú kannast við umslagið vinsamlegast hafðu samband við Bjarna Dag í síma: 698 1657 eða í netfangið: finndagur@vortex.is.