Karfan.is stóð fyrir vali á besta byrjunarliði Tindastóls

Besta byrjunarlið Tindastóls. MYND: KARFAN.IS
Besta byrjunarlið Tindastóls. MYND: KARFAN.IS

Á Karfan.is er að finna bráðskemmtilega umfjöllun um besta byrjunarlið Tindastóls í körfunni frá upphafi. Að sjálfsögðu hafa ófáir snillingar spilað með Stólunum í gegnum tíðina og byrjunarliðið sem nokkrir fjölfróðir stuðningsmenn liðsins völdu sannarlega ekki af verri endanum.

Flest atkvæði í kosningunni fékk hinn einstaki framherji Valur Ingimundarson sem var óstöðvandi þegar hann var upp á sitt besta – sem var oft og lengi. Hinn framherji liðsins var valinn Helgi Rafn Viggósson, núverandi fyrirliði Tindastóls. Miðherji er risinn Pétur Guðmundsson sem hefur af mörgum verið talinn besti körfuknattleiksmaður landsins, enda ekki spilað með ómerkari liðum en Lakers, Spurs og Chairs. Skotbakvörður er Kristinn Friðriksson, ofurskyttan Kiddi Gönn, sem var merkilega flinkur körfuboltamaður. Það er síðan hinn eldsnöggi leikstjórnandi Páll Kolbeinsson sem fullkomnar byrjunarlið Tindastóls en hann er sagður bera ábyrgð á sneggsta cross-over sögunnar.

Sjötti maðurinn er síðan Svavar Birgisson sem hefur gert andstæðingum Stólanna lífið leitt árum saman. Besti þjálfari Tindastóls var síðan valinn Israel Martín sem stjórnaði liðinu af lagni og fagmennsku á síðasta tímabili.

Umfjöllunin er talsvert ítarlegri á Karfan.is og þeir sem hafa gaman af körfunni geta eytt tímanum í margt verra en að lesa þessa umfjöllun.

Fleiri fréttir