Karlakórinn Heimir leggur línurnar fyrir vetrarstarfið
Vetrarstarf Karlakórsins Heimis er nú hafið og samkvæmt heimasíðu kórsins var vel mætt á fyrstu æfingu vetrarsins. Nokkir nýjir hafa bæst í hópinn og aðrir snúið tilbaka sem höfðu tekið sér hvíld frá kórstarfinu.
Kórinn er þegar farinn að skipuleggja og æfa fyrir Þrettándatónleikana sem verða haldnir þann 14. janúar nk. Á tónleikunum mun verða ríkt vínarþema sótt í smiðjur Strauss og Lehar. Þá verður notast við undirleik strengja og blásturs og flutt verk eins og Dóná svo blá, Sögur úr vínarskógi, Eitt sinn í æskutíð svo fleiri mætti nefna.
Aðdáendur Karlakórsins Heimis eru hvattir til að taka daginn frá njóta þeirrar tónlistarveislu sem kórinn mun bjóða uppá.