Karlakórinn Heimir - Söngferð um Suðurland - Ferðasaga
Á heimasíðu Karlakórsins Heimis má lesa skemmtilega ferðasögu kórsins sem hélt tvenna tónleika á suðurlandi um helgina. Gefum þeim körlum orðið; "Árla morguns í fallegu vorveðri var pöllunum pakkað í rútu og haldið af stað í söngferð. Nú skyldi skemmta fólkinu á sléttunum miklu á Suðurlandi. Eftir að hafa framfylgt lögbundnu pissustoppi í Staðarskála var haldið áfram yfir Holtavörðuheiðina. Fljótlega fór hann að þykkna upp og Borgarfjörðurinn tók á móti okkur með grenjandi slagviðri. Þó fór vel um okkur í bílnum og bílstjórinn stýrði fimlega gegnum vindsveipina við Hafnarfjall. Vanur maður Gísli Rúnar.
Á bökkum Laxár í Leirársveit er rekin ferðaþjónusta í húsnæði er eitt sinn hýsti sláturhús. Sjá www.laxarbakki.is
Jón formaður hafið frétt að Rökkurkórinn hefði komið þar við á ferð sinni fyrir nokkru og fengið afbragðs góðan viðurgjörning hjá þeim sómahjónum sem staðinn reka. Við ákváðum að láta á þetta reyna og pöntuðum hjá þeim hádegismat. Ekki stóð á því og biðu okkar rjúkandi réttirnir sem menn gerðu góð skil með bestu lyst. Hafði einn kórmanna á orði að hann hefði ekki fengið betur steiktan fisk síðan amma hans heitin var upp á sitt besta og sótti nýveidda ýsuna beint af bryggjunni.
Eitthvað stóð það í okkur að þakka fyrir matinn með söng, en lofuðum að gera bragarbót á því á heimleiðinni.
Í Reykjavík fundum við nokkra kórfélaga á bensínstöð við Norðlingaholtið. Við hirtum þá upp sem við töldum eitthvað gagn að en sendum kynningarstjórann, einsöngvarann og stjórnandann á undan í útvarpsviðtal á Selfossi til að kynna komu okkar og gaf Ari Jóhann áheyrendum forsmekkinn af því sem koma skyldi er hann brast í söng í beinni!
Í Selfosskirkju er gott að syngja og við renndum okkur gegnum söngskránna án mikilla vandkvæða. Á söngskránni kennir ýmissa grasa, m.a. eru þar nokkrar hestavísur hver eftir annari. Kynnirinn okkar skreytir gjarnan kynningar sínar með kveðskap. Eftir létta áminningu um að við Skagfirðingar teljum okkur kunna allvel að fara með hross kynnti hann fyrsta lagið í þessum flokki með vísu eftir Erling Sigurðson frá Grænavatni í Mývatnssveit.
Skagfirðingum er lífið leitt
létta það eftir föngum.
Ríða þétt við þjóðveg eitt
og þykjast vera í göngum
Hirðskáldið okkar, Sigurður Hansen frá Kringlumýri í Blönduhlíð, taldi sér málið skylt og svaraði að bragði.
Þeir ganga um og gleypa loft
gelta skríðandi
Því Þingeyingar eru oft
illa ríðandi.
Jón Þorsteinn Reynisson lék 2 lög á hnappaharmoniku sína eftir hlé og Ari Jóhann brá sér úr öftustu röðinni ein 3 skipti og söng einsöng með miklum glæsibrag.
Kynnirinn fór um víðan völl í kynningum sínum og gantaðist meðal annars með að þeir Ari Jóhann og stóðhesturinn frægi, Hrafn frá Holtsmúla, væru uppeldisbræður. Árna á Uppsölum þótti nóg um:
Gunnar hann er gersemi
okkur góður fengur
En ekki orð er markandi
sem út úr honum gengur
Að tónleikum loknum var brunað að Laugalandi í Holtum. Þar biðu okkar nokkrir félagar úr Karlakór Rangæinga með kvöldverð sem við þáðum með þökkum. Þar tilkynntu formenn kóranna að Karlakór Rangæinga verði gestakór okkar á Sæluviku 2012. Þá fáum við tækifæri til að launa þeim gestrisnina.
Að Laugalandi er sungið í íþróttasal skólans og óttuðumst við að húsið væri "dautt" og hljómburður lítill. Sá ótti reyndist ástæðulaus því bæði heyrðist vel milli radda og áheyrendur heyrðu vel í flutningi okkar sem og Jóns Þorsteins á nikkuna. En aftur að rútuferðinni.
Á leiðinni austur í Holtasveit tilkynnti Þórólfur á Hjaltastöðum í hátalarakerfi bílsins að nú væru Lionsmenn í söfnunarátaki til styrktar Talgervla-verkefnis Blindrafélagsins. Afhenti hann hverjum manni Rauðu fjöðrina, hvatti menn til að næla henni í barminn og lét það fylgja að hann tæki við frjálsum framlögum í söfnunarbauk. Þetta varð kynninum að yrkisefni, eða réttara sagt, útúrsnúningi:
Þú komst í hlaðið á hvítri rútu
Þú komst með með fjöður í barmi þér
af druslulegri og dauðri pútu
sem dró hann Þórólfur heim með sér
Þennan óskapnað notaði hann svo í eina kynninguna en "Þú komst í hlaðið" er einmitt eitt laganna á söngskránni.
Nú er það þannig að allstaðar sem kórinn kemur þekkir Þórólfur fólk. Sagan segir að fyrir allmörgum árum hafi Þórólfur verið að vísitera á bæjum þarna í héraðinu og keypt sér úrvals hænu. Þessi viðskipti rifjuðust upp fyrir einum tónleikagesta sem afhenti kynninum eftirfarandi vísu, og vildi meina að nú væri hænan "komin heim"
Í Heimi syngja hetjur slyngar
sem hafa þokka kunnan
Skemmtu hérna Skagfirðingar
skreyttir hænu að sunnan.
Magnús Halldórsson
Ekki lét hirðskáldið sitt eftir liggja, en hann þekkir vel til í Holtnum , dvaldi þar við störf á yngri árum og rómantískur texti lagsins "Við linditréð" vöktu hjá honum þessar kenndir:
Þó lífsins vindar líði hjá
lifir mynd á skjánum.
því gengnar syndir gleymast hjá
gömlu linditrjánum.
Sigurður Hansen
Að tónleikum loknum buðu Skagfirðingarnir Ásta Begga og Gísli Sveins uppá "smá" hressingu fyrir heimferðina. Þar svignuðu borðin undan þjóðlegum kræsingum og hnallþórum sem við skoluðum niður með heitu súkkulaði. Stóð þetta með okkur alla leiðina norður.
Heimferðin gekk áfallalaust. Við efndum loforðið um að syngja fyrir hjónin að Laxárbakka, en svo heppilega vildi til að þar var einmitt kosningavaka og fengu gestir óvænt skemmtiatriði. Farið var að birta af degi þegar síðustu menn komust í bólið eftir langan og strangan dag.
Bestu þakkir fær Gísli Rúnar hjá Suðurleiðum fyrir lipra og góða þjónustu, hjónin að Laxárbakka og þeirra starfslið, umsjónarmenn Selfosskirkju og Laugalands, Karlakór Rangæinga, Ásta Begga, Gísli Sveins og þeirra fólk og svo allir þeir sem á einhvern hátt lögðu okkur lið í vel heppnaðri söngferð.
AH