Karlamessa í Hvammstangakirkju
Í tilefni þorrabyrjunar verður karlamessa haldin í Hvammstangakirkju sunnudaginn 29. janúar nk. kl. 11.00.
Samkvæmt vefmiðlinum Norðanátt.is munu systur í Soroptimistaklúbbnum Við Húnaflóa vera messuhópur dagsins og afhenda öllum körlum rauða rós við innganginn. Þær koma einnig til með að aðstoða við helgihaldið og bjóða uppá súpu og brauð eftir messu.
Sóknarprestur býður alla velkomna á messuna.