Karlar og konur ríða á föstudaginn
Hestamannafélagið Léttfeti á Sauðárkróki hefur auglýst karla- og kvennareið á morgun föstudaginn 27. maí en þá verður lagt í´ann frá Tjarnarbæ klukkan 18:30 og riðin góður hringur. Grillað verður í Tjarnarbæ á eftir og verður matarverði stillt í hóf. Sagt er að skrautlegur klæðnaður sé æskilegur og verða verðlaun veitt fyrir flottasta knapann eða hestinn.
Þá er bara að dubba sig upp og mæta í fjörið og tekið er fram að allir séu velkomnir. Fyrir utan ferðina á morgun stendur ferðanefndin fyrir nokkrum ferðum í sumar og má sjá þær hér fyrir neðan.
Mánudaginn 13. júní (annar í Hvítasunnu) - Fjölskyldureiðtúr og kaffi í Tjarnarbæ á eftir.
Föstudaginn 24. júní – Jónsmessureið.
Hugmynd að sameiginlegum reiðtúr á Landsmót ef áhugi er fyrir hendi.
Laugardaginn 16. júlí – Léttur reiðtúr og kaffi í Tjarnarbæ á eftir.
Helgina 5. - 7. ágúst – Stóra ferðin.
Allir atburðir verða auglýstir nánar þegar nær dregur og er þetta einnig birt með fyrirvara um breytingar.