Karlarnir gleðja elsku dúllurnar sínar
Karlkynsstarfsmenn við Árskóla munu í dag efna til kaffisamsætis fyrir kvenkynsstarfsmenn skólans í tilefni konudagsins sem er á sunnudag. Auglýsing um kaffisamsætið birtist í Sjónhorni í gær og vakti verskuldaða athygli í bænum.
Þegar Feykir forvitnaðist um málið kom upp úr kafinu að konurnar höfðu glatt karlana hressilega á bóndadaginn þar sem allir karlmenn fengu kort með mynd af sér og fallegri kveðju auk þess sem konurnar höfðu prjónað fallegar slaufur í íslenskum fánalitum fyrir strákana sína. Mun því staðan eftir daginn í dag vera eitt – eitt.