Kaupfélag Skagfirðinga framleiðir Ísey Skyr í Rússlandi

Í dag fer fram vígsluathöfn í tilefni af upphafi skyrframleiðslu í Rússlandi undir vörumerkinu Ísey Skyr sem er í eigu Mjólkursamsölunnar. Að framleiðslunni stendur rússneska félagið IcePro LLC sem er í meirihlutaeigu Kaupfélags Skagfirðinga en að félaginu koma einnig rússneskir fjárfestar, þar á meðal IceCorpo RUS, en í gegnum það félag hefur Kaupfélag Skagfirðinga ásamt hjónunum Sigurjóni Bjarnasyni og Katerinu Gerisimovu rekið rússneskt félag, IceCorpo LLC, sem hefur fengist við sölu á íslensku lambakjöti í Rússlandi síðustu þrjú ár.

IcePro hefur samið við rússneska mjólkurframleiðandann, Lactika JSC, um framleiðslu og dreifingu á skyrinu undir sérleyfissamningi við Mjólkursamsöluna. IcePro og Lactika standa síðan saman að markaðssetningu vörunnar. Undirbúningur framleiðslu og dreifingar hefur staðið undafarna mánuði og verður skyrið komið í hillur nokkurra verslunarkeðja í Moskvu og Pétursborg um næstu mánaðamót.

Markmið IcePro er að ná 5.000 tonna ársframleiðslu fyrir Rússlandsmarkað innan þriggja ára. Til samanburðar eru framleidd árlega um 3.000 tonn af skyri á Íslandi.

Heildarfjárfesting innlendra og erlendra fjárfesta nemur um 500 milljónum íslenskra króna.

„Það er sérstakt ánægjuefni fyrir Mjólkursamsöluna að þessum áfanga séð náð. Vörumerkið Ísey Skyr er á mikilli siglingu um heiminn og Rússland er 150 milljón manna markaður, sem bætist nú við markaði eins og Bandaríkin, Norðurlöndin, Bretland, Sviss, Ítalíu, Benelux löndin svo eitthvað sé nefnt. Við erum full bjartsýni á gengi skyrsins í Rússlandi enda varan sem þeir eru að framleiða hér frábær og stenst okkar ýtrustu gæðakröfur.“ Ari Edwald, forstjóri MS

Katarina Geresimova, framkvæmdastjóri IcePro LLC, segir að undirbúningur verkefnisins hafi tekið tvö ár. „Allar markaðsrannsóknir sem við höfum gert benda til þess að skyrið eigi mjög góða möguleika á að verða vinsæl vara í Rússlandi. Nú þegar höfum við hlotið verðlaun í keppni framleiðenda mjólkurvara, fyrir bragð og útlit skyrsins.

Gaman er að geta þess að við sérframleiddum skyr fyrir íslenska landsliðið í knattspyrnu og sendum þeim 650 dósir áður en þeir komu á hótelið. Einungis tveimur dögum síðar kom pöntun upp á 850 dósir til viðbótar. Ég bjó á Íslandi í 10 ár og veit hvað varan er sérstök. Umræðan í Rússlandi snýst í vaxandi mæli um próteinríkar, heilsusamlegar matvörur og er sá hluti markaðarins í örum vexti. Ég er því mjög bjartsýn og hlakka til að takast á við uppbyggingu Ísey Skyr vörumerkisins hér í Rússlandi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir