Kemur á óvart að Helgi Viggós skuli hitta utan af velli

Feykir.is setti sig í samband við Tindastólsmanninn og KR-inginn Ágúst Kárason – eða bara Gústa Kára – til að fá hans álit á einvígi Tindastóls og KR. Gústi leiddi lið Tindastóls þegar það tryggði sér í fyrsta sinn sæti í efstu deild og er með ódrepandi körfuboltadellu. Hann hefur verið stjórnarmaður í KR síðustu ár en hætti fyrir u.þ.b. ári en segist í dag vera í stöðu meðhjálpara á gólfinu.

Hvernig líst þér á viðureign KR og Tindastóls um Íslandsmeistaratitilinn? -Viðureign þessara liða verður svakaleg og má gera ráð fyrir fullu húsi á hverjum leik og eins gott að fólk mæti snemma til að tryggja sér stöðu í húsinu. Þetta verða 5 leikir – það er klárt.

Hvað hefur komið þér mest á óvart í leik Tindastóls í vetur? -Það sem kemur kannski mest á óvart við leik Tindastóls er fyrst og fremst hversu frábærlega vel skipulagt liðið er. Þjálfaranum tekst að koma hlutverki hvers leikmans vel til skila og menn hlusta greinilega á kallinn í brúnni sem er gríðalega mikilvægt. Svo kemur það líka á óvart að Helgi Viggós skuli hitta utan af velli (-:

Ungu strákarnir eru búnir að standa sig gríðarlega vel í allan vetur og ekki átt slæman leik ennþá, Spurning hvort að pressan fari að plaga menn núna.

Svo má ekki gleyma þætti stuðningsmanna Tindastóls. Það er gríðarlegur munur á því að lið hafi ÁHORFENDUR eða STUÐNINGSMENN.

Ertu pottþéttur með hvort liðið á að styðja? -Ég spilaði með Tindastóli og var fyrirliði þegar við urðum Íslandsmeistarar í 1. deild og tryggðum okkur sæti í úrvalsdeild í fyrsta skipti í sögu félagsins ef ég man rétt. Ég hef aldrei spilað með KR en börninn hafa spilað þar og gera enn. Ég er búinn að starfa fyrir KR í 12-14 ár en ég er og verð ALLTAF Tindastólsmaður og líka KR-ingur – hin heilaga tvenna. Ég lofaði fólkinu á Króknum eftir leikinn á móti UÍA, þegar það varð ljóst að við færum upp um deild og fengum bikarinn afhentan, að einn daginn yrði Tindastóll Íslandsmeistari í efstu deild. Nú er tækifærið. Ég verð alla vega sáttur með úrslitin hvernig sem fer.

Hvernig spáir þú að einvígið fari? -Eina sem ég get spáð fyrir er að þetta fer í 5 leiki + nokkrar framleikingar. Áfram karfan – móðir allra íþrótta!

Fleiri fréttir