Kennslu lokið með skákmóti
Líkt og undanfarin ár hafa nemendur í Sólgarðaskóla fengið tilsögn í skák nokkrum sinnum í vetur. Kennslunni lýkur ávallt með því að mót er haldið. Það fór að þessu sinni fram í síðustu viku og var teflt eftir monrad kerfi. Sigurvegari varð Egill Halldórsson sem hlaut fimm vinninga af sex mögulegum.
Næstur varð Kristinn Jóhannesson með fjóra og hálfan og þriðji Skarphéðinn Jónsson með fjóra vinninga.
/Öþ.