Keppir fyrstur Íslendinga

Skíðagöngukappinn Sævar Birgisson keppir fyrstur Íslendinga á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí og mun hann keppa í 15 km sprettskíðagöngu í dag á slaginu kl. 10:43. Sævar er fyrsti fulltrúi Íslands í skíðagöngu á Ólympíuleikum í tvo áratugi og fyrstur af fimm íslenskum keppendum sem keppir í Sotsjí. Allir hinir keppa í alpagreinum.

Sævar hefur áður gefið út að hann yrði sáttur við að verða meðal 50 efstu keppenda í göngunni í dag. „Það eru tvær mjög langar og krefjandi brekkur í brautinni og þá er sprettbrautin í lengri kantinum miðað við það sem gengur og gerist. Maður verður því að halda aftur af sér og klára brekkurnar vel. Það er hins vegar hart og fínt færi sem hentar mér vel auk þess sem það er gott að spyrna með slíkt undirlag. Ég vona að færið haldist þannig þegar út í keppnina er komið,“ sagði Sævar í samtali við Vísi.

Hægt verður að fylgjast með Sævari þreyta keppni kl. 10:43 í beinni útsendingu á Rúv en útsending hefst kl. 10:00.

Heimild: Vísir.is og Rúv.is

Fleiri fréttir