Keppt í fimm gangi á miðvikudag
Næstkomandi miðvikudagskvöld verður keppt í KS Deildinni. Í þetta sinn er það 5 gangur og það stefnir í mjög harða keppni. Af 18 skráðum hrossum eru 11 hross sem hlotið hafa 1. verðlaun í kynbótadómi auk annarra þekktra keppnishrossa.
Það er ljóst að áhorfendur munu sjá margar glæsisýningar og baráttan um að komast í úrslit verður hörð. Ráslisti verður birtur í dag mánudag.