Keppt í tölti í KS-Deildinni

Töltkeppni KS-Deildarinnar fer fram næstkomandi miðvikudagskvöld, 25.mars, í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki.Margir góðir hestar eru skráðir og munu meðal annars sigurvegararnir frá því í fyrra, Bjarni Jónasson og Randalín frá Efri-Rauðalæk mæta.

Mette Mannseth og Trymbill urðu í þriðja sæti í fyrra en nú mun Gísli Gíslason sitja Trymbil frá Stóra-Ási. Þórarinn Eymundsson og Taktur frá Varmalæk munu einnig mæta en þeir enduðu í fjórða sæti í fyrra.

„Greinilegt er að það stefnir í hörku keppni og verður spennandi að sjá hverjir ná topp fimm þetta árið. Fjölmennum í höllina og sjáum skemmtilega töltkeppni,“ segir í fréttatilkynningu frá Svaðastaðahöllinni. Mótið hefst kl. 20:00 og verður sýnt beint frá því inná http://svadastadir.is.

Ráslistinn er sem hér segir:

1.Mette Mannseth - Hnokki frá Þúfum / Draupnir-Þúfur

2. Hörður Ó. Sæmundarson - Daníel frá Vatnsleysu / Hrímnir

3. Baldvin A. Guðlaugsson - Lipurtá frá Hóli / Efri-Rauðalækur-Lífland

4. Elvar Einarsson - Lárus frá Syðra-Skörðugili / Hofstorfan-66°norður

5. Hanna R. Ingibergsdóttir - Hlýr frá Breiðabólsstað / Íbess-Gæðingur

6. Hallfríður S. Óladóttir - Óði-Blesi frá Lundi / TopReiter

7. Fanney Dögg Indriðadóttir - Brúney frá Grafarkoti / Topreiter

8. Barbara Wezl - Dalur frá Háleggsstöðum / Draupnir-Þúfur

9. Bjarni Jónasson - Randalín frá Efri-Rauðalæk / Hofstorfan-66°norður

10. Þórarinn Eymundsson - Taktur frá Varmalæk / Hrímnir

11. Viðar Bragason - Fróði frá Staðartungu / Efri-Rauðalækur-Lífland

12. Magnús B. Magnússon - Gola frá Krossanesi / Íbess-Gæðingur

13. Guðmundur K. Tryggvason - Rósalín frá Efri-Rauðalæk / Efri-Rauðalækur-Lífland

14. Teitur Árnason - Kúnst frá Ytri-Skógum / TopReiter

15. Tryggvi Björnsson - Sprunga frá Bringu / Hofstorfan-66°norður

16. Anna K. Friðriksdóttir - Glaður frá Grund / Íbess-Gæðingur

17. Gísli Gíslason - Trymbill frá Stóra-Ási / Draupnir-Þúfur

18. Líney M. Hjálmarsdóttir - Stormur frá Draflastöðum / Hrímnir

Fleiri fréttir